Innlent

Getur vel orðið arðbær iðnaður

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Hjarðeldi á þorski getur vel verið arðbært, segir Jón Eðvald Halldórsson, en hann hefur nýlokið við meistaraverkefni um efnið frá Háskólanum á Akureyri. „Alla vega benda mínar niðurstöður til að þetta geti orðið arðbær iðnaður," segir hann.

Hjarðbúskapur var reyndur af Hafrannsóknastofnun í Arnarfirði fyrir fáum árum en hann byggist upp á því að fóðra þorsk á ákveðnu svæði og reyna með slíkum hætti að fá fiskinn í stóra torfu.

En Jón hugsar ekki mikið um hjarðeldi núna því hann er nýtekinn við sem kaupfélagsstjóri í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar af afa sínum Jóni Alfreðssyni sem gegnt hafði starfinu í 41 ár.- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×