Innlent

Lífeyrissjóðirnir styrki krónuna

Vilhjálmur Egilsson
Vilhjálmur Egilsson

„Ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti þá höfum við ekkert annað að gera en að fara heim og undirbúa sautjánda júní," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem vill að stýrivextir lækki niður í eins stafs tölu í dag.

„Við verðum að finna einhvern flöt á því að fyrirtæki og heimili geti horft fram á að hafa starfsfrið og lágmarks starfsgrundvöll," segir Vilhjálmur og bætir við að stungið hafi verið upp á því að lífeyrissjóðir legðu til eignir erlendis til að styrkja gjaldeyrisforðann.

Hann segir ríkisfjármálin „ótrúlega stórt" verkefni. „Það þarf alls staðar að lækka útgjöld og hækka skatta." - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×