Innlent

Starfa ekki með meirihlutanum

Ólafur F. Magnússon
Segir fulltrúum F-listans bolað úr nefndum.
Ólafur F. Magnússon Segir fulltrúum F-listans bolað úr nefndum.

„Ég frábið mér að lesa í blöðum frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að hún sé að lýðræðisvæða borgina. Hún er ekki að því heldur er hún að framsóknarvæða borgina," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans.

Ólafur vísar í orð borgarstjóra í Fréttablaðinu í gær um ný vinnubrögð í borgarstjórn með samstarfi allra borgarfulltrúa.

„Þvert á móti er verið að bola okkur úr þeim nefndum sem hægt er og koma framsóknarmönnum að þar sem hægt er í nefndum og ráðum," segir Ólafur. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×