Tveir hafnsögumenn hætt komnir 4. júní 2009 18:49 Mennirnir voru í hættu þrátt fyrir einstaklega góðar aðstæður við björgun.
Tveir menn voru mjög hætt komnir í Sandgerði síðdegis þegar dráttarbát hvolfdi um leið og strönduðum togara var komið á flot. Annar mannanna sat fastur í stýrishúsinu fullu af sjó í á þriðju mínútu. Það var um fimmleytið í morgun sem togarinn Sóley Sigurjóns strandaði í innsiglingunni að Sandgerðishöfn og komu björgunarsveit og varðskipið Týr fljótt á vettvang. Þá var háflóð en eftir því sem fjaraði undan skipinu hallaði það meira á strandstað. Sex úr áhöfn voru ferjaðir í land í morgun en fimm urðu eftir um borð. Fljótlega varð ljóst að erfitt yrði á ná togaranum á flot, enda um 1.300 tonn að eigin þyngd, og reiknaðist mönnum til að um einn metra myndi vanta upp á að hann næði að losna sjálfur á síðdegisflóðinu klukkan 16.20. Norska varðskipið Harstad var því einnig fengið á vettvang en til stóð að það tæki þátt í æfingu með Landhelgisgæslunni í dag. Þegar nálgaðist síðdegisflóð upp úr klukkan fjögur byrjaði Týr að draga og norska varðskipið togaði einnig með og tveir dráttarbátar, Auðunn frá Keflavík og Hamar úr Hafnarfirði, ýttu á stefni skipsins. Það var svo um fimmleytið sem tókst að losa togarann og dróst hann þá svo hratt af strandstaðnum að dráttarbáturinn Auðunn, sem bundinn var við togarann, togaðist á hliðina og hvolfdi síðan. Tveir hafnsögumenn voru um borð í dráttarbátnum, annar var úti á dekki. Sá reyndi að klifra upp á kjöl bátsins þegar honum hvolfdi en féll síðan í sjóinn þaðan sem honum var fljótlega bjargað. Skipstjórinn sat hins vegar fastur í stýrihúsinu í tvær til þrjár mínútur, áður en honum tókst að losa sig og komast út, að sögn Guðmundar Ólafssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Sigurvonar, sem telur að þeir hafi verið mjög hætt komnir. Baldur Hrafnkell Jónsson, kvikmyndatökurmaður Stöðvar 2, náði myndum af atburðinum þegar dráttarbátnum hvolfdi, og þegar mönnunum var bjargað, og voru þær sýndar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Mennirnir virtust hressir eftir volkið og var innilega fagnað við komuna í land úr þessum lífsháska.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira