Varfærin lækkun gefur færi á afnámi gjaldeyrishafta 4. júní 2009 11:19 Arnór Sighvatsson
Arnór Sighvatsson aðstoðar Seðlabankastjóri las upp yfirlýsingu peningastefnunefdar á blaðamannafundi í Seðlabankanum nú fyrir stundu en stýrivextir voru lækkaðir um eitt prósentustig úr 13 í 12 prósent líkt og greint hefur verið frá. Hann sagði markaðsvxti hafa lækkað umtalsvert frá maíbyrjun. Skammtímavextir hafi hækkað um u.þ.b fjórar prósentur og raun- og nafnvextir langtímaskuldabréfa um 0,5 og 1,5 prósentur. Fyrir vikið sagði hann að ávöxtunarferillinn hefði orðið flatari en áður, sem hvetur fjárfesta til þess að auka hlutdeild langtímaskuldabréfa í eignasöfnum. Hann sagði innlánsvextir hafa einnig lækkað umtalsvert. „Í yfirlýsingu peningastefnunefndar frá 7. maí kom fram að nefndin vænti áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds að því tilskyldu að gengisþróun yrði hagfelld og að áætlunum um aðhald í ríkisfjármálum miðaði áleiðis. Síðan þá hefur gengi krónunnar verið lágt. Þótt umtalsverður afgangur á vöru- og þjónustuviðskipum við útlönd styðji við krónuna virðist afgangurinn á fyrsta fjórðungi ársins hafa verið minni en vænst var sakir halla á þjónustuviðskiptum og umtalsverðrar verðlækkunar útflutnings. Vöruskiptaafgangur í apríl var einnig fremur lítill. Seðlabankinn hefur beitt inngripum á gjaldeyrismarkaði til þess að styðja við gengi krónunnar. Eigi að síður hefur hreinn gjaldeyrisforði bankans aukist nokkuð sl. ársfjórðung," sagði Arnór. Þá sagði hann að þótt samdráttur eftirsprunar og aukið atvinnuleysi hefði dregið úr verðbólguþrýstingi, gæti enn töluverðra gengisáhrifa í hækkun vísitölu neysluverðs. „Þau skýra 1,1% hækkun hennar í maí að mestu leyti. Tímabundin hækkun húsnæðisliðar vísitölunnar stuðlaði einnig að hækkun hennar. Tólf mánaða veðbólga minnkaði úr 11,9% í apríl í 11,6% í maí. Haldist gengi krónunnar og nafnlaun stöðug, er þess að vænta að verðbólgan hjaðni svipað og spáð var maí og verði nálægt 2,5% markmiðinu í byrjun næsta árs. Eins og fram kom í maí telur peningastefnunefndin viðeigandi að samspil efnahagsaðgerða færist í átt til aukins aðhalds í fjármálum hins opinbera og slökunar peningalegs aðhalds, að því marki sem það samrýmist gengistöðugleika. Fyrstu aðhaldsaðgerðir í fjármálum hins opinbera hafa þegar verið samþykktar á Alþingi. Eftir því sem fleiri aðgerðir koma til framkvæmda mun peningastefnunefndin meta áhrif þeirra og afleiðingar fyrir mótun stefnunnar í peningamálum. Nefndin telur að ákvarðanir um aðhaldsaðgerðir sem koma til framvæmda í ár og skýr skuldbinding stjórnvalda um aðhaldsaðgerðir á árunum 2010-2012 séu grundvöllur þess að endurheimta traust markaðarins og skapa þannig svigrúm til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds. Að lokum er nauðsynlegt að taka mið af afnámi gjaldeyrishafta, sem líklegt er að hefjist seint á þessu ári. Með því að gæta varúðar við slökun peningalegs aðhalds gefst færi á að afnema gjaldeyrishöftin án þess að stöðugleika krónunnar sé stefnt í tvísýnu. Þegar fyrir liggja betri upplýsingar um greiðslujöfnuð við útlönd, aðhaldsaðgerðir í opinberum fjármálum til langs tíma hafa verið samþykktar, tvíhliða- og marghliða lánasamningum sem styrkja gjaldeyrisforðann er lokið og þegar endurskipulagning fjármálageirans er langt komin verður hægt að taka fyrstu skrefin að afnámi hafta með því að gefa nýfjárfestingu frjálsa. Höft á fjármagnshreyfingar verða afnumin í áföngum sem samrýmast stöðugu gengi." Þá sagði Arnór að næsta yfirlýsing peningastefnunefndarinnar verði birt 2. júlí næstkomandi
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira