Innlent

Marel slær taktinn í Kauphöll

æðstu stjórnendurnir Gangi allar áætlanir eftir bætist 2,1 milljarður króna í mesta lagi í sjóði Marel Food Systems. Fréttablaðið/GVA
æðstu stjórnendurnir Gangi allar áætlanir eftir bætist 2,1 milljarður króna í mesta lagi í sjóði Marel Food Systems. Fréttablaðið/GVA

Stjórn Marel Food Systems ákvað í gær að efna til áskriftarútboðs fyrir fagfjárfesta með það fyrir augum að styrkja lausafjárstöðu félagsins. Gefið verður út nýtt hlutafé í útboðinu sem lýkur á föstudag.

Þetta er fyrsta hlutafjárútboðið hjá skráðu félagi í Kauphöllinni það sem af er árs.

Ætla má að allt frá tæpum 1,1 til 2,1 milljarðs króna bætist við sjóði Marels ef miðað er við að gefnir verði út allt frá tuttugu til 35 milljónir hluta og seldir á verðbilinu 54 til 60 krónur á hlut. Lægra verðið jafngildir um tíu prósenta afslætti af bréfum félagsins, en það er nokkuð í samræmi við hlutafjárútboð erlendis upp á síðkastið.

Gengi hlutabréfa Marel stóð í 63 krónum á hlut við lokun viðskipta á hlutabréfamarkaði á þriðjudag en féll um tólf prósent í gær. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×