Innlent

Ákvörðun Seðlabankans rædd á Alþingi

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti úr 13% í 12% var rædd á Alþingi í morgun en þingmenn vildu almennt sjá meiri lækkun.

Tryggvi Þór Herbertsson sagði ákvörðunina endurspegla aðgerðarleysiskostnað ríkisstjórnarinnar og að svo virtist sem að stjórnarflokkarnir hefðu engin ráð og lausnir.

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, sagði ósanngjarnt að tala um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og að ómaklegt væri að segja að ekkert væri verið að gera. Sjálfur hefði hann vonast eftir að lækkunin yrði meiri.

Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði ákvörðunina skiljanlega í ljósi aðstæðna. Hann sagði bankann ekki geta lækkað vexti á kostnað gengisstöðugleika.

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði augljóst að vextirnir lækkuðu ekki meira vegna þess að ekki liggi fyrir raunhæf áætlun í ríkisfjármálum. Auk þes sagði hann ríkisstjórnina hafa verið mislagðar hendur við að koma saman bankakerfinu.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, sagði ljóst að ríkisstjórnin hefði brugðist.

Þá sagði Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, stýrivaxtalækkunina alltof litla og að stjórnvöld hefðu lagt fram allar þær upplýsingar sem þyrfti til að lækka vextina umtalsvert.








Tengdar fréttir

Stýrivextir úr 13 í 12 prósent

Seðlabanki Íslands tilkynnti nú fyrir stundu stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig, úr 13 prósentum í 12. Ákvörðun bankans verður rökstudd á blaðamannafundi klukkan 11.

Vill stýrivexti niður í fjögur prósent

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í samtali við fréttastofu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans mikil vonbrigði. Fyrirtækin komist ekki í gang og kostnaður ríkisins af vöxtum jöklabréfa aukist.

Ákvörðun Seðlabankans gríðarleg vonbrigði

Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans er gríðarleg vonbrigði, segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann hafði vonast að lækkunin yrði meiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×