Geð- og kvensjúkdómalæknar spá í spilin Atli Steinn Guðmundsson skrifar 14. apríl 2008 14:09 Landspítalinn við Hringbraut. „
Konan á frjósemisskeiði til tíðahvarfa" var yfirskrift ráðstefnu sem Geðlæknafélag Íslands stóð fyrir á Hótel Sögu á laugardag í samvinnu við Félag íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna. Fjallað var um geðheilsu kvenna í tengslum við tíðahvörf, notkun geðlyfja við meðgöngu auk notkunar hormóna til að létta konum lífið á breytingaskeiði. Gestafyrirlesarar voru Hadine Joffe, sérfræðingur í geðlækningum við Massachusetts General Hospital, og Svend O. Skouby, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, og ræddu þau um landamæri geðlæknisfræði og kvensjúkdómafræði og ávinning og áhættu samfara hormónanotkun. Ræddi Skouby um hjartasjúkdóma, brjóstakrabbamein og aðra áhættuþætti er fylgt hafa svokallaðri blandaðri hormónameðferð. Meginniðurstaða hans var að mun minni áhætta væri samfara hormónanotkun nú til dags, einkum ef hormónar væru gefnir í mjög litlum skömmtum. Geðlyf á meðgöngu Guðlaug Þorsteinsdóttir geðlæknir ræddi um vanlíðan kvenna vegna fyrirtíðaspennu og fæðingarþunglyndis og meðhöndlun slíkra kvilla með þunglyndislyfjum og Halldóra Ólafsdóttir, yfirlæknir á geðdeild Landspítala, ræddi um notkun geðlyfja á meðgöngu og við brjóstagjöf. Auk þess ræddi Jens Guðmundsson, yfirlæknir á kvennadeild Landspítala, um breytingar á notkun hormóna í ljósi rannsóknar Women's Health Initiative sem ætlað var að meta áhrif estrógenmeðferðar og samsettrar hormónameðferðar á heilsu kvenna. Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélags Íslands, sagði slíkar þverfaglegar ráðstefnur á sviði læknisfræðanna hafa færst nokkuð í vöxt hin síðari ár. Tæplega 70 gestir hefðu sýnt sig á laugardaginn og ráðstefnan verið allrar athygli verð.
Mest lesið Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn fundinn Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Sjá meira