Sálfræðinemar opna hjálparsíðu fyrir börn og unglinga 1. desember 2008 21:34 Auður Sjöfn Þórisdóttir og Ingunn S. Unnsteinsdóttir eru talsmenn síðunnar.
BA nemendur í sálfræði við Háskóla Íslands hafa opnað hjálparsíðu sem ætluð er börnum og unglingum hér á Vísi. Hugmyndin kemur frá nemendunum sjálfum sem datt í hug að halda síðunni úti meðfram námi. Auður Sjöfn Þórisdóttir er ein þeirra sem standa að baki síðunni. „Okkur datt í hug að gera eitthvað svona til þess að öðlast reynslu, þetta er líka góð leið til þess gera eitthvað gagn á þessum tímum," segir Auður en til þess að byrja með skipta nemendur á milli sín að svara þeim sem sækja síðuna. „Það verður þannig til að byrja með þar sem við erum á fullu í lokaprófum, eftir áramót er hugmyndin að stækka þetta og fá fleiri til þess að taka þátt," segir Auður en síðan er aðallega ætluð börnum og unglingum. „Þau geta þá sent okkur spurningar sem tengjast líðan þeirra í kreppunni og yfir jólin, við reynum síðan að koma með ráðleggingar." Auður segist hafa fundið fyrir mikilli óvissu og ringulreið í samfélaginu. „Það eru margir sem liður illa og sérstaklega börn sem skilja oft ekki hvað er að gerast og svona. Því er sniðugt að hafa einhvern stað til þess að leita til." Þeir sem senda inn spurningar fá persónuleg svör í pósti en ætlunin er einnig að birta einhverjar nafnalusar spurningar og svör við þeim sem vonandi gagnast öðrum. Hægt er að skoða síðuna hér.
Mest lesið Hótar að beita stríðsmálaráðuneytinu: „Chipocalypse Now“ Erlent Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund Innlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Innlent Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Innlent „Eins og að fá hnefahögg í andlitið“ Innlent Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Innlent Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Innlent Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Innlent Fleiri fréttir Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Eygir vonarneista í fyrsta sinn í marga mánuði Eygir vonarneista í fyrsta sinn og mótmæli um allt land Segir dregið úr veiðum á grundvelli „Walt Disneylíffræði“ Árborg girnist svæði Flóahrepps Sendu kæligáma til Úkraínu Langflestir lögreglumenn á Suðurnesjum Brunarústirnar fjarlægðar tveimur árum eftir brunann Íbúar mótmæla og vilja börn frekar en byggingu í Gunnarsbrekku Reyndi að stinga lögreglu af á buggy Bílvelta í Kömbunum „Eins og að fá hnefahögg í andlitið“ Sveitarstjórn reyni að skrá íbúa úr sveitarfélaginu og ógni grundvallarréttindum Skoða að efla geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi eftir röð áfalla Kjölur ekki á dagskrá Lögregla kölluð til eftir að bremsuvírar voru klipptir á reiðhjólum barna Fólk deili lyfseðlum og „míkródósi“: „Við getum ekki réttlætt þá meðferð“ Sjá meira