Íslendingar með sendifulltrúa í Palestínu 22. apríl 2008 14:55
Íslendingar verða með sérstakan sendifulltrúa gagnvart Palestínu. Frá þessu var greint á blaðamannafundi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í Ráðherrabústaðnum. Þau ræddu saman á um klukkustundar löngum fundi og helstu tíðindin voru þau að Þórður Ægir Óskarsson verður sérlegur sendifulltrúi Íslands í Palestínu. Hann hefur þó aðsetur hér að sögn utanríkisráðherra en mun heimsækja heimastjórnarsvæði Palestínu reglulega og ræða við aðila þar.Sagði Ingibjörg Sólrún að þetta væri í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld skipuðu sendifulltrúa gagnvart Palestínu en með þessu vilja stjórnvöld leggja sitt af mörkum til þess að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs.Ingibjörg Sólrún sagði eftir fundinn ánægð að fá Abbas í heimsókn til Íslands. Ein af fyrstu heimsóknum hennar sem utanríkisráðherra til útlanda hefði verið til Ísraels og Palestínu og þá hefði hún fundað með Abbas á Ramallah en hún hefði ekki haft hugmynd um að Abbas heimsækti Ísland tíu mánuðum síðar. Sagðist hún ánægð að geta rætt friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs sem hún styddi að fullu.Ræddi við fulltrúa allra stjórnmálaflokkaAbbas sagðist mjög ánægður að vera á Íslandi og fá tækifæri til þess að ræða við bæði forseta og utanríkisráðherra. Þá hefði hann einnig rætt við fulltrúa allra stjórnmálaflokka á Íslandi um sameiginlega hagsmuni landanna. Sagði hann utanríkisráðherra hafa lýst því yfir að vonandi næðist samkomulag um frið milli Ísraela og Palestínumanna og hann vonaðist til að það næðist fyrir árslok. Þá sagðist hann þakklátur fyrir það að Íslendingar hygðust skipa sérstakan sendifulltrúa gagnvart Palestínu og það væri mikilvæg ákvörðun. Hún endurspeglaði vilja Íslendinga til þess að taka þátt í friðarferlinu.Rætt um mannréttindamálUtanríkisráðherra var spurð hvort hún hefði tekið upp mannréttindamál við forseta Palestínu eins og Amnesty International hefði óska eftir. Ingibjörg Sólrún svaraði því til að hún hefði rætt yfirvofandi aftöku 23 ára gamals manns. Abbas sagðist hafa tekið hvert orð utanríkisráðherra alvarlega.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira