Vinstri græn skora á ríkisstjórnina að semja við ljósmæður 23. ágúst 2008 14:00
Á stjórnarfundi Vinstri grænna í gær var samþykkt ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórnina að ganga til samninga við ljósmæður. Vinstri grænir segja að staðan sem upp sé komin í samningaviðræðum við ljósmæður sé ólíðandi. Ályktun Vinstri Grænna er birt hér í heild sinni: Stjórn Vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórnin gangi til samninga við ljósmæður. Neyðarástand skapast á fæðingadeildum landsins innan fárra vikna þar sem fjöldi ljósmæðra hefur sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Það er ótrúlegt að enn þurfa kvennastéttir að beita hörku til að fá störf sín metin til launa. Orð stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um að jafna kjör kynjanna eru innantóm þegar stétt sem telur einungis konur mætir fálátum viðbrögðum við kröfum um að fá svipuð laun og karlastéttir með sambærilega menntun. Sú staða sem komin er upp í samningaviðræðum við ljósmæður er ólíðandi, bæði gagnvart ljósmæðrum en ekki síður fæðandi konum sem nú eru í óvissu um hvort þær fái nauðsynlega og sjálfsagða þjónustu í mæðraeftirliti og fæðingu. Ríkisstjórnin vanmetur því ekki eingöngu störf ljósmæðra, heldur eru þarfir kvenna einnig virtar að vettugi. Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin semji nú þegar við ljósmæður og forði því að flótti verði úr stéttinni. Enn fremur lýsir stjórn Vinstri grænna yfir stuðningi við ljósmæður og baráttuna fyrir jöfnum launum kynjanna.
Mest lesið Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Erlent Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Innlent „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ Innlent „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Innlent Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Innlent Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal Innlent Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Innlent Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Erlent Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Erlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Útgerðin misst tengsl við almenning og ómögulegt að fá greiðslumat Tengist ekki skuggaflota Rússlands Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Sjá meira