Vandi OR og REI ekki einungis Sjálfstæðismanna 19. apríl 2008 13:38 Björn Bjarnason
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar pistil á heimasíðu sína í dag þar sem hann fjallar um Orkuveitu Reykjavíkur og REI. „Ég hef skrifað ítarlega um OR/REI/GGE málið og undrast, hvernig á því er haldið. Hef ég fært rök fyrir þeirri skoðun, að slík leyndarhyggja sé innbyggð í stjórnarhætti Orkuveitu Reykjavíkur, að borin von sé að óbreyttu, að tekið sé á málefnum fyrirtækisins eða undirfyrirtækja þess á þann veg, að sæmi fyrirtæki í opinberri eign," skrifar Björn á heimasíðu sína. „Skörin er farin að færast upp í bekkinn, þegar Óskar Bergsson og aðrir framsóknarmenn kvarta undan því, að ekki séu lagðar fram nægilega miklar upplýsingar um skuldbindingar OR. Enginn stóð fastar gegn því en Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi framsóknarmanna, að miðla upplýsingum um OR til kjörinna fulltrúa, jafnvel stjórnarmanna í OR. Talaði hann eins og slík upplýsingagjöf væri hrein fásinna með hagsmuni OR að leiðarljósi." Björn segir að vandi Orkuveiturnnar og REI sé ekki vandi Sjálfstæðismanna einna í borgarstjórn heldur sé þetta vandi allrar borgarstjórnarinnar. „100 daga stjórnin undir forystu Dags B. Eggertssonar, Svandísar Svavarsdóttur og Björns Inga Hrafnssonar skaut sér undan OR/REI málinu með því að setjast í þagnarbindindi, á meðan það væri til skoðunar. 100 daga skoðunin leiddi ekki til neinnar niðurstöðu," skrifar Björn. „Af því að meiri kröfur er unnt að gera til sjálfstæðismanna en annarra borgarfulltrúa er eðlilegt, að litið sé til þeirra um forystu til að leysa OR/REI málið með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi. Sjálfstæðismenn skortir hins vegar afl í borgarstjórn til að standa einir að lausn málsins. Þeir hafa ekki heldur borið gæfu til að halda á málinu á nægilega traustvekjandi hátt. Lausnin er ekki á færi neins eins flokks í borgarstjórn. Á meðan borgarfulltrúar bera ekki gæfu til að mynda neinn meiihluta um að sigla OR úr þessari villu er haldið áfram á ógæfubraut fyrir sjálfstæðismenn og alla aðra í borgarstjórn."
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira