Sjálfstæðisflokkurinn með „óábyrgar skyndihugmyndir“ 18. apríl 2008 09:16 Dagur B. Eggertsson. MYND/GVA
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir að sé forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag rétt sé Sjálfstæðisflokkurinn að ganga gegn málegnasamningi sitjandi meirihluta. Fréttablaðið segist hafa fyrir því heimildir að samkomulag hafi náðst innan meirihluta stjórnar Orkuveitunnar að samþykkja tillögu um að hefja undibúning að sölu REI. „Þetta er þvert á yfirlýsingar borgarstjóra í Kastljósi í gær og virðist raunar einnig vera í mótsögn við málefnasamning sitjandi meirihluta þar sem einkavæðing orkufyrirtækja er útilokuð," segir Dagur. „Niðurstaða Sjálfstæðisflokksins virðist enn og aftur vera viðbragðs-pólitík, að þessu sinni vegna harðorðs leiðara Morgunblaðsins í gær þar sem stefnuleysi og hringlandaháttur borgarstjórnarflokksins var kallaður "lágkúrulegur", borgarstjórnarflokkurinn sagður forystu- og dómgreindarlaus og ástandið "hörmulegt, en því miður staðreynd," " bætir Dagur við. Dagur segir Sjálfstæðisflokkinn þó gera illt verra með „óábyrgum skyndihugmyndum um sölu REI" og að „enn og aftur virðist Sjálfstæðisflokkurinn ætla að falla í þá gryfju að reyna að leysa innbyrðis ágreining og valdabaráttu með skyndihugdettum um sölu þar sem hagsmunir borgarbúa og Orkuveitunnar eru fyrir borð bornir. Borgarstjóra á augljóslega að niðurlægja í leiðinni. Hann er ekki hafður með í ráðum heldur stillt upp við vegg á forsíðum blaðanna." Stjórnarfundur Orkuveitunnar fer fram í dag klukkan ellefu. Vísi hefur ekki tekist að ná í neinn þeirra fulltrúa sem skipa meirihlutann í fyrirtækinu.´ Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar segir að tilllagan um sölu REI sé ekki á fyrirfram ákveðinni dagskrá fundarins.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira