Framsóknarmenn vilja stýrivaxtalækkun strax 11. júlí 2008 16:07
Þingflokkur framsóknarmanna telur að fullar forsendur séu fyrir því að hefja lækkunarferli stýrivaxta Seðlabanka Íslands hið fyrsta. Þetta kemur fram í tillögum sem þingflokkurinn hefur sent frá sér. Þar er jafnframt bent á nauðsyn þess að Seðlabanki nýti sér heimildir Alþingis til töku erlends láns sem allra fyrst til að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans, styðja við fjármálakerfi landsmanna og auka trúverðugleika íslensks efnahagslífs. Framsóknarmenn segja að alvarleg efnahagskreppa liggi í loftinu. Hún sé meðal annars tilkomin vegna alþjóðlegrar lánsfjárkreppu en einnig sé vandinn að miklu leyti heimatilbúinn. Íslensk stjórnvöld hafi enn ekki gripið inn í atburðarrásina með afgerandi hætti og fyrir vikið séu líkur á að kreppan verði dýpri og lengri en ella. Framsóknarmenn segja að trúverðugleiki efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar hafi beðið hnekki vegna yfirlýsinga sem ekki hafi verið fylgt eftir. Orðum hafi ekki fylgt efndir og því megi líkja við alvarleg hagstjórnarmistök.Eftirfarandi eru tillögur þingflokks framsóknarmanna til aðgerða vegna þess ástands sem ríkir í efnahagsmálum 1. Þingflokkur framsóknarmanna telur að Seðlabanki Íslands verði að nýta heimildir Alþingis til töku erlends láns sem allra fyrst til að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans, styðja við fjármálakerfi landsmanna og auka trúverðugleika íslensks efnahagslífs. 2. Þingflokkur framsóknarmanna kallar eftir því að ríkisstjórn og Seðlabanki komi fram með skýra áætlun um hvernig íslenskt þjóðfélag á að vinna sig í gegnum þá djúpu efnahagslægð sem þjóðin stendur frammi fyrir til að skapa trú og traust á stefnu þeirra sem fara með stjórn efnahags- og peningamála hér á landi. Seðlabankinn verður að auka gagnsæi ákvarðanatöku sinnar, m.a. með birtingu rökstuðnings fyrir vaxtaákvörðunum. Hafa ber í huga að Seðlabankinn er ekki aðeins bundinn verðbólgumarkmiði heldur einnig því að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi og framgangi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. 3. Þingflokkur framsóknarmanna bendir á að samdráttur íslenska hagkerfisins virðist vera harðari og meiri en gert var ráð fyrir og því eru fullar forsendur fyrir því að hafið verði lækkunarferli stýrivaxta Seðlabanka Íslands hið fyrsta. Þetta verði liður í þeim vegvísi sem ríkisstjórn og Seðlabankinn þurfa að opinbera fólki og fyrirtækjum. 4. Þingflokkur framsóknarmanna vill styrkja stoðir íbúðalánamarkaðarins. Endurfjármögnun Íbúðalánasjóðs á fasteignalánum fjármálastofnana verði til reiðu vegna lána undir ákveðnum fjárhæðarmörkum. Þannig er komið með félagslegum hætti að vanda tekjulægri hópa. 5. Þingflokkur framsóknarmanna vill að undirbúningi stórframkvæmda á vegum ríkis og sveitarfélaga verði hraðað þannig að hægt verði að ráðast í þær með skömmum fyrirvara. Horfa þarf sérstaklega til arðbærra framkvæmda sem hafa margföldunaráhrif á allt hagkerfið. 6. Þingflokkur framsóknarmanna ítrekar enn að ríkisstjórnin þarf að taka frumkvæði að nýrri þjóðarsátt með aðgerðum sem draga úr verstu áhrifum efnahagskreppunnar. Mikilvægar forsendur þess eru að ríkisstjórnin virki boðaðan samráðsvettvang stjórnarsáttmálans til samræmdra aðgerða stjórnvalda og atvinnulífs.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira