Undibúa koltrefjaverksmiðju á Króknum 17. apríl 2008 15:09
Kaupfélag Skagfirðinga, Gasfélagið og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert með sér samkomulag um að stofna undirbúningsfélags sem hyggst reisa koltrefjaverksmiðju á Sauðarkróki. Það voru Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS, Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Gasfélagsins, og Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri Skagafjarðar, sem undirrituðu samkomulagið á Sauðárkróki í dag að viðstöddum Össuri Skarphéðinssyni Iðnaðarráðherra og Þorsteini Inga Sigfússyni, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. „Koltrefjar eru notaðar sem styrkingarefni við framleiðslu á margs konar framleiðsluvörum. Koltrefjar leysa því af hólmi ýmis þekkt smíðaefni í iðnaði svo sem ál, timbur og stál, sérstaklega í iðngreinum þar sem léttleiki og styrkur eru leiðarljósið. Sem dæmi þá nýtir flugvélaiðnaðurinn þetta efni í vaxandi mæli og er ný kynslóð af farþegaþotum svo sem Boeing 787 Dreamliner og Airbus 350 smíðuð að verulegu leyti með koltrefjum sem styrkingarefni. Koltrefjar stuðla vegna léttleika að minni orkunotkun, auk þess sem umhverfisáhrif við framleiðslu eru takmörkuð," segir í tilkynningu frá samningsaðilum. Fram kemur í tilkynningunni að heildarhlutafé undirbúningsfélagsins sé 25 milljónir króna og munu KS og Gasfélagið leggja til 10 milljónir hvort félag og sveitarfélagið 5 milljónir til verkefnisins. Áætlað er að koltrefjaverksmiðjan afkasti 1.500 til 2.000 tonnum af kolefnistrefjum á ári. Áætluð raforkunotkun slíkrar verksmiðju er 10 megavött og felst undirbúningur að stofnunni meðal annars í að leita samninga um hagstæð orkukaup. Í tilkynningunni kemur einnig fram að sveitarfélagið Skagafjörður hafi haft forgöngu um stofnun félags um uppbyggingu koltrefjaverksmiðjunnarog unnið að undirbúningi hennar í samvinnu við Fjárfestingarstofu, Hátæknisetur Íslands, Skagafjarðarhraðlestina og Atvinnuþróun SSNV. Niðurstaða þeirrar vinnu er að sú þekking sem orðin er til hjá aveitarfélaginu og Hátæknisetri Íslands á framleiðslu koltrefja ásamt aðgangi að endurnýtanlegri orku gerir Skagafjörð að afar góðum kosti til uppbyggingar koltrefjaverksmiðju. Skapar allt að 120 störf á svæðinu Stefnt er að því að undirbúningsfélagið ljúki störfum á næstu tólf mánuðum og að þá verði tekin afstaða til þess hvort verksmiðja verði reist. Komist aðilar að þeirri niðurstöðu að ráðast skuli í byggingu koltrefjaverksmiðju verður stofnað um hana sérstakt félag og gert um það nýtt samkomulag, á grundvelli þess samkomulags sem undirritað var í dag. Áætluð heildarfjárfesting koltrefjaverksmiðju yrði á bilinu fjórir til fimm milljarðar króna. „Undanfarin ár hefur fjárfesting í orkufrekum iðnaði einkum beinst að álframleiðslu sem krefst mikillar fjárfestingar bæði fyrir framleiðsluna og öflun orkunnar. Koltrefjaframleiðsla hefur þá kosti að hún krefst ekki jafn gríðarlegrar fjárfestingar og hentar því vel til atvinnuuppbyggingar smærri byggðarlaga. Áæltað er að um 60 störf þurfi til rekstrar þeirrar einingar sem horft hefur verið til. Heildar áhrif á vinnumarkað svæðisins eru metin með afleiddum störfum til 110 til 120 starfa sem eru um 5% aukning," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira