Árs fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í umferðarslysi 6. nóvember 2008 16:36
Hæstiréttur hefur staðfest eins árs fangelsisdóm héraðsdóms yfir tuttugu og fjögurra ára gömlum karlmanni, Þórði Jónsteinssyni, fyrir manndráp af gáleysi tengslum við umferðarslys á Suðurlandsvegi til móts við Sandskeið í desember 2006. Þórður var ákærður fyrir að hafa ekið bifreið sinni of hratt miðað við aðstæður. Hann var að taka fram úr vörubíl og lenti í árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Farþegi í þeirri bifreið lést, annar farþegi lamaðist á fótum, ökumaður þeirrar bifreiðar rifbrotnaði og marðist á brjóstkassa, kviðvegg og hné og þá lést farþegi í bifreið hins ákærða. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna, var talið sannað með vitnisburði tveggja vitna að Þórður hefði í umrætt sinn ætlað sér að aka fram úr vörubifreið og í því skyni ekið yfir á rangan vegarhelming. Var aksturinn talinn gáleysislegur og vítaverður miðað við þær aðstæður sem á vettvangi voru en vegurinn var blautur. Hefur verið tekinn níu sinnum fyrir hraðakstur eftir slysið Við mat á refsingu Þórðar var meðal annars litið til þess að hann hafði í alls níu skipti eftir umrætt slys verið staðinn að hraðakstri. Að þessu virtu þótti refsing hans hæfilega ákveðin 12 mánaða fangelsi en ekki þótti stætt á að skilorðsbinda refsinguna að hluta. Þá var hann sviptur ökuleyfi í fjögur ár.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira