Fær ekki bætur vegna gæsluvarðhalds í BMW-máli 23. maí 2008 09:31 MYND/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað ríkið af kröfu manns um bætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti í tengslum við rannsókn BWM-málsins svokallaða. Maðurinn fór fram á fjórar milljónir króna í skaðabætur fyrir að hafa setið í gæsluvarðhaldi í rúman mánuð vorið 2006 eftir að lögregla hafði lagt hald á rúm um 25 kíló af amfetamíni og kannabisefnum sem falin höfðu verið í BMW-bifreið sem flutt hafði verið til landsins. Fallið var frá máli á hendur sama sumar og því fór hann fram á bætur vegna þess að hann taldi sig hafa setið í gæsluvarðhaldi að ósekju. Í dómi héraðsdóms segir að um hafi verið að ræða umfangsmikið mál en alls höfðu níu manns réttarstöðu sakborknings á einhverju stigi þess en fjórir voru ákærðir. Bent er á að framburður mannsins undir rannsókn málsins beri þess merki að hann kjósi að upplýsa ekki um mikilvæg atriði sem snúa að honum sjálfum og samskiptum hans við aðra grunaða í málinu á þeim tíma sem um ræðir. Hann hafi stuðlað að því að rannsóknin dróst á langinn og gæsluvarðhaldstíminn varð svo langur sem raun ber vitni. „Þótt rannsóknin leiddi ekki til ákæru á hendur stefnanda verður ekki hjá því komist að líta svo á að framkoma hans við skýrslugjöfina hjá lögreglu hafi verið með þeim hætti að hún hafi stuðlað að því hversu gæsluvarðhaldsvist hans dróst á langinn," segir í dómnum. Því verði að sýkna ríkið af bótakröfu mannsins. Þó segir dómurinn að aðfinnsluvert sé að stefnanda var ekki tilkynnt formlega um að málið hefði verið fellt niður gagnvart honum fyrr en í lok júní 2007. „Í ljósi málsatvika skapar slíkt þó ekki rétt til bóta honum til handa," segir dómurinn.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Sjá meira