Höft á fjármagnshreyfingar og skilaskylda sett á gjaldeyri 27. nóvember 2008 20:30
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra mælti nú í kvöld fyrir breytingum á lögum um gjaldeyrismál. Í frumvarpinu eru ákvæði til bráðabirgða sem gera Seðlabanka heimild til að takmarka eða stöðva tímabundið fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast til og frá landinu ef slíkar hreyfingar valda að mati bankans „alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum. Fyrsta umræða tók fljótt af og fer málið nú fyrir viðskiptanefnd. Þingfundi hefur verið frestað til klukkan 22:15. Í athugasemdum við frumvarpið segir: „Í áætlun stjórnvalda til Alþjóðgjaldeyrissjóðsins kemur fram að gert sé ráð fyrir að beitt verið blöndu af hefðbundnum og óhefðbundnum aðgerðum. Stýrivextir hafa verið hækkaðir í 18% auk þess sem Seðlabankinn er tilbúinn að hækka stýrivextina enn frekar. Einnig verður beitt aðhaldi hvað áhrærir aðgang bankanna að lánum frá Seðlabankanum með það að markmiði að ekki verði dregið um of á lausafé með þeim hætti. Þá hefur Seðlabankinn lýst því að hann sé tilbúinn að nota gjaldeyrisforðann til að koma í veg fyrir of miklar sveiflur í gengi krónunnar. Óvíst er hvort þessar aðgerðir einar og sér nægi til að koma í veg fyrir fjármagnsútflæði. Því er talið óhjákvæmilegt samkvæmt áætluninni að beita tímabundnum takmörkunum á gjaldeyrisviðskipti vegna fjármagnsviðskipta sem er efni frumvarps þessa. Gjaldeyrishöftum á fjármagnsviðskipti fylgja ýmis neikvæð hliðaráhrif. Því er stefnt að því að afnema þau svo fljótt sem auðið er og lagt til að heimild Seðlabankans til að gefa út reglur um takmarkanir eða stöðvun fjármagnshreyfinga verði bundin við tímabil fjárstuðningsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins." Þá er einnig gert ráð fyrir að Seðlabankinn geti sett reglur um að skylt sé að skila erlendum gjaldeyri sem innlendir aðilar hafa eignast. Málinu var komið á dagskrá í kvöld með afbrigðum og deildi Jón Bjarnason, þingmaður VG á ráðherra fyrir lélegan undirbúning og þann litla tíma sem gæfist til að ræða málið á þingi. Í svipaðan streng tóku þingmenn Höskuldur Þórhallsson Framsóknarflokki og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Frumvarpið má nálgast hér.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira