Undiralda fordóma til staðar í þjóðfélaginu 11. febrúar 2008 19:40 Vefsvæðið leit svona út gær áður en að því var læst. MYND/Stöð 2
Undiralda fordóma er til staðar í þjóðfélaginu, en það staðfestir vefsvæði sem stofnað var og kallað félag gegn Pólverjum á Íslandi og sjö hundruð unglingar skráðu sig inn á. Þetta segir forstöðumaður frístundamiðstöðvar hjá ÍTR. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá vefsvæðinu en þar var farið niðrandi orðum um Pólverja sem hér eru búsettir. Í morgun var búið að færa vefsvæðið og læsa því. Flestir þeirra sem skráðu sig þar inn og skrifuðu voru unglingar. Fréttastofan leitaði í dag viðbragða hjá aðilum sem vinna með unglingum vegna málsins. Einn þeirra er Jóhannes Guðlaugsson, forstöðumaður frístundamiðstöðvar hjá Íþrótta og tómstundaráði Reykjavíkur. Jóhannes segist upplifa aukna kynþáttafordóma meðal þessa hóps og að vefsvæðið staðfesti að undiralda fordóma sé til staðar í þjóðfélaginu sem ungmennin séu að endurspegla. Hann telur ríka ástæðu fyrir þá sem vinna með börn og unglinga að grípa inn í svona umræðu og segir að það verði gert. Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri tómstundamála hjá ÍTR, segir málið verða skoðað í samvinnu við skólana og kannað hvort auka fræðslu og umræðu um kynþáttafordóma. Soffía bendir á að foreldrar verði að gera sér grein fyrir sinni ábyrgð í málinu. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahús, tekur í sama streng og telur að unglingarnir grípi fordóma sína mikið til úr umhverfinu en fordómarnir séu ekki sjálfsprottnir. Einar segir að með vaxandi fjölda innflytjenda virðist sem að andúð á þeim sé að aukast og því sé fræðsla mjög mikilvæg. Það að ungmennin taki sig saman og stofni svona hóp sýni að þeim liggi eitthvað á hjarta. Því sé mikilvægt að skapa vettvang þar sem þau geti rætt málin og hægt sé að fræða þau.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Fleiri fréttir Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent