Forsetinn fundaði með Soniu Gandhi 11. febrúar 2008 13:27 Sonia Gandhi.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti á laugardag fund með Soniu Gandhi, leiðtoga Kongressflokksins, á heimili hennar. Var það við hins svokallaða Delí-leiðtogafundar. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að Sonia Gandhi hafi fagnað þeim árangri sem náðst hafi með aukinni samvinnu Indlands og Íslands frá því hún kom til Íslands fyrir nokkrum árum sem gestur forseta og frá því þáverandi forseti Indlands, dr. A.P.J. Abdul Kalam, kom í opinbera heimsókn til Íslands árið 2005. Sonia Gandhi lýsti miklum áhuga á samvinnu íslenskra og indverskra jöklafræðinga í rannsóknum á eyðingu jökla í Himalayafjöllum. Að því koma einnig fleiri sérfræðingar frá öðrum löndum. Segir í tilkynningunni að rannsóknir á Himalayafjöllunum hafi verið vanræktar um árabil. Það er sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að bráðnun Himalayajökla vegna loftslagsbreytinga geti leitt til mestu umhverfishörmunga 21. aldar enda sé fæðuöflun og vatnsbúskapur um 700 milljóna Indverja háður þessum jöklum.Forsetinn og Gandhi ræddu einnig um árangur Delí-leiðtogafundarins sem er þegar orðinn áhrifaríkur vettvangur fyrir víðtækt samráð um sjálfbæra þróun og bætt lífsskilyrði þess meginhluta mannkyns sem býr á suðurhveli jarðar. Alþjóðlegt orðspor dr. Pachauri, stofnanda Delífundanna, sem nýlega tók við friðarverðlaunum Nóbels, hafi og gefið þeim aukinn sess.Forseti sat einnig fund í Þróunarráði Indlands sem haldinn var í tengslum við leiðtogafundinn. Þar var rætt um hugsanlegt samstarf við Þróunarráð Kína, en það þróunarráð er líkt og hið indverska skipað auk heimamanna sérfræðingum og áhrifafólki víða að úr veröldinni. Markmiðið væri að gera ítarlega úttekt á þróun þessara tveggja fjölmennustu ríkja heims fram til ársins 2050.Meðal annars yrði fjallað um áhrif aukins hagvaxtar á orkuþörf, fæðuframboð, vatnsbúskap, nýtingu auðlinda og aðra þætti sem munu hafa afgerandi áhrif á hagkerfi heimsins og afkomu alls mannkyns. Þá munu Indland og Kína að öllum líkindum vera orðin helstu drifkraftar í efnahagskerfi veraldar og telja ríflega þriðjung jarðarbúa.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira