Vilhjálmur verður áfram í borgarstjórn 11. febrúar 2008 00:01 Vilhjálmur ku hafa rætt við Davíð Oddsson um stöðu sína.
Nær útilokað er talið að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segi af sér, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Líkleg niðurstaða er að hann sitji áfram sem borgarfulltrúi en borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins finni sér annað borgarstjóraefni. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa ekki fundað síðan Vilhjálmur kom fram í Kastljósi á fimmtudaginn. Þeir hafa hins vegar rætt mikið saman í síma og hefur Geir H. Haarde, formaður flokksins, átt samtöl við Vilhjálm um stöðu mála. Vilhjálmur hefur enn fremur ráðfært sig við Davíð Oddsson, seðlabankastjóra og fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins. Heimildir blaðsins herma að Vilhjálmur muni ekki taka neina ákvörðun varðandi sín mál strax. Forystumenn í flokknum hafi ráðlagt honum að taka ekki ákvörðun fyrr en orrahríðin vegna REI-málsins sé gengin yfir, þar sem almenningsálitið breytist hratt. Enn fremur þoli borgarstjórnarflokkurinn ekki átök um næsta borgarstjóraefni undir núverandi kringumstæðum. Hugsanlegt er að Vilhjálmur taki ekki ákvörðun fyrr en eftir nokkrar vikur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins funda í Ráðhúsinu í dag. Sá fundur var löngu ákveðinn og þó að mál Vilhjálms sé ekki formlega á dagskrá er ljóst að það verður rætt. Líklegt er að Vilhjálmur tjái sig eftir fundinn. Fréttablaðið hefur ekki náð í Vilhjálm síðan á fimmtudaginn.- shá / - th
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Fleiri fréttir Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Sjá meira