Borgarstjóri ekki starfi sínu vaxinn 27. apríl 2008 13:17 Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi Vg.
Í kvöldfréttum í gær sagði borgarstjóri að fyrirætlanir Tjarnarkvartettsins um að efla mannréttindaskrifstofu borgarinnar hafi verið tilraun til að þenja út stjórnkerfið. Hann sagði jafnframt að starfsemi skrifstofunnar hafi verið óljós og illa skilgreind. Verkefni skrifstofunnar séu ekki jafn brýn og að tryggja velferð og góða þjónustu við borgarbúa. Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi Vg og fyrrum formaður mannréttindaráðs vekur máls á þessu í bréfi sem hún hefur sent fjölmiðlum. Þar segir einnig: Þessi ummæli borgarstjórans eru til skammar, enda byggð á vanþekkingu á málaflokknum, fordómum og virðingarleysi gagnvart minnihlutahópum og borgarbúum öllum.Mannréttindaskrifstofa – ekki stjórnkerfiBorgarstjórinn hélt því ranglega fram að til hefði staðið að gera sérstakt mannréttindasvið. Oddiviti F-listans í Tjarnarkvartettinum og núverandi borgarstjóri er nú ekki betur að sér en það.Efling mannréttindaskrifstofunnar snérist alls ekki um stjórnkerfi. Hún snérist um að ráða inn starfsfólk til að skrifstofan gæti sinnt þeim verkefnum sem henni ber samkvæmt mannréttindastefnu borgarinnar. Sú stefna var unnin í þverpólítískri sátt og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, þ.m.t. akvæði Ólafs F. Magnússonar.Óljós og illa skilgreind starfsemiÞað er rétt hjá borgarstjóra að starfsemin hafi verið óljós. Fyrst og fremst vegna þess að allt þar til Tjarnarkvartettinn tók við hafði einni manneskju verið ætlað að sinna öllum þeim fjölda verkefna sem borginni ber. Fyrirætlanir um starfsfólk á skrifstofuna til viðbótar við mannréttindastjórann voru til þess eins að skerpa á starfseminni og efla afköst hennar. Mannréttindi ekki jafn brýn og velferð og góð þjónustaAð halda því fram að grundvallarmannréttindi borgarbúa séu ekki jafn brýn og velferð og góð þjónusta væri án efa tilefni til afsagnar borgarstjóra í sanngjörnu og réttlátu samfélagi.Borgarstjórinn í Reykjavík telur 85 milljónir króna í málaflokk mannréttinda vera peningaaustur.Þau nýju verkefni sem borgarstjórinn telur óþörf lúta m.a. að eftirfarandi:- Vinna gegn kynbundnu ofbeldi. - Efla aðgengi innflytjenda að samfélaginu með áherslu á gagnkvæma aðlögun að fjölmenningarsamfélagi. - Átak í atvinnumálum fatlaðra hjá borginni - Útrýma kynbundnum launamun hjá borginni. - Gera húsnæði borgarinnar aðgengilegt fyrir alla. - Vinna gegn staðalímyndum kynjanna, innflytjenda, fatlaðra og samkynhneigðra. - Hafa áhrif á erlendum vettvangi sem fyrirmyndarborg á sviði mannréttinda.Borgarstjórinn í Reykjavík ber ekki hagsmuni borgarbúa fyrir brjósti. Hans verk tala. Hugsjónir sem fyrst og fremst snúast um dauða hluti. Hús og götur. Bíla og flugvélar. Borgarbúar, og grundvallarmannréttindi þeirra eru ekki 85 milljóna króna virði að hans mati. Slíkur borgarstjóri er ekki starfi sínu vaxinn!
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Fleiri fréttir „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Sjá meira