Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur 24. apríl 2008 17:40 Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2.
Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 hefur sent frá sér yfirlýsingu. Í beinni útsendingu á Vísi í gær spurði Lára útsendingarstjóra hvort hún ætti að finna einhvern sem væri tilbúinn til að kasta eggi í átt að lögreglunni þegar mótmælið við Rauðavatn stóðu sem hæst í gær. Yfirlýsing Láru er eftirfarandi: Reykjavík, 24. apríl 2008 Vegna ummæla minna sem fyrir mistök heyrðust í beinni útsendingu á vísi.is í gær vil ég taka eftirfarandi fram. Á orðunum mátti skilja að ég væri reiðubúin til að sviðsetja atburði fyrir myndavélar Stöðvar 2. Það dytti mér aldrei í hug að gera enda brot á grundvallarreglum blaðamennsku. Þetta var sagt í fullkomnum hálfkæringi og einungis ætlað eyrum samstarfsmanns. Það dytti engum minna samstarfsmanna í hug að taka orð af þessu tagi bókstaflega en alþekkt er að á milli okkar fjúki ýmislegt gráglettið. Stundum er það til spennulosunar á álagsstund. Mér þykir afar miður að þessi orð skuli hafa farið fyrir eyru almennings og að það hvarfli að einhverjum að draga trúverðuleika minn, eða minna samstarfsmanna, í efa á forsendum þessara mistaka. Það ætti að vera næsta augljóst að þessi ummæli voru ekki sett fram í alvöru og ég ítreka að sviðsetning atburða í fréttatíma er svo alvarlegt brot á meginreglum míns starfs að ég léti mér slíkt aldrei til hugar koma. Lára Ómarsdóttir Fréttamaður á Stöð 2
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Sjá meira