Árni Johnsen: Persónulegt skítkast 26. apríl 2008 16:58 Árni Johnsen.
Árni Johnsen alþingismaður segist hafa lítið um væntanlega kæru aðstoðarvegamálastjóra á sig að segja. Gunnar Gunnarsson, aðstoðarvegamálastjóri, tilkynnti í dag að hann ætlaði að kæra Árna til lögreglu fyrir ummæli sem hann lét falla í grein í Morgunblaðinu í dag. „Ég hef nú lítið um þetta að segja, þarna talar reiður maður sem fer út í persónulegt skítkast á mig," segir Árni í samtali við Vísi. „Þetta mál snýst ekki um það og það er vont þegar menn rugla saman samgöngumálum og lögfræðiflækjum." Árni segir að allt sem hann sagði í greininni byggi á réttum upplýsingum. „Gunnar, sem fulltrúi Vegagerðarinnar í nefnd sem átti að fjalla um samgöngumál Vestmannaeyinga sinnti ekki skildu sinni að mínu mati. Hann kann að hafa sínar skýringar á því en þessi vinna var ekki unnin faglega og hún skilaði ekki því sem hún átti að gera sem var að finna hagkvæmasta kostinn í stöðunni." Árni segir að svo virðist vera að þegar nefndin starfaði hafi aldrei komið til greina að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að höfn í Bakkavör væri besti kostur. „Jarðgöng eða nýr Herjólfur virtust bara ekki eiga að vera inni í myndinni," segir Árni og bætir við að slík vinnubrögð séu dónaskapur í garð Vestmannaeyinga og í raun skemmdarverk þar sem hagkvæmasti kosturinn í stöðunni hafi ekki verið valinn. Aðspurður segist Árni ekki óttast málsókn Gunnars. „Kannski hefur hann ekki nægilega mörg verkefni hjá Vegagerðinni, ég veit það ekki, en gæfan fylgi honum," segir Árni Johnsen.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira