Saving Iceland gagnrýna starfsemi REI í Yemen Atli Steinn Guðmundsson skrifar 21. júlí 2008 15:05 Frá aðgerðum Saving Iceland í fyrra
Umhverfisverndarsamtökin Saving Iceland kasta fram þeirri spurningu í fréttatilkynningu hvort samkomulag Reykjavík Energy Invest við yfirvöld í Yemen um tilraunaboranir á Lesi-fjalli komi blásnauðum almenningi landsins til góða eða verði eingöngu vatn á myllu stjórnvalda sem samtökin segja bæði vera gjörspillt auk þess að ýta undir ójöfnuð stétta landsins sem sé gríðarlegur. Fulltrúi Saving Iceland hafði samkvæmt tilkynningu samtakanna samband við REI til að grennslast fyrir um verkefnið í Yemen. Mun honum þá hafa verið tjáð að ekki væri um raunverulegt samkomulag að ræða, eingöngu óformlegar viðræður um aðstoð við rannsóknir og engar fjárfestingar. Saving Iceland segja REI hafa í hyggju að verja 300 milljónum króna í jarðvarmaverkefni í Djibouti. Viðmælandi samtakanna hjá REI mun hins vegar, samkvæmt fréttatilkynningunni, hafa neitað að tjá sig frekar um málið þegar spurt var hvort fyrir dyrum stæði að leggja í svipaðar fjárfestingar í Yemen. „Í Yemen var skrifað undir minnisblað um frekari viðræður milli REI og orkufyrirtækis yemenska ríkisins en í Djibouti hafa tekist samningar um hugsanlega raforkusölu að lokinni hagkvæmniathugun," sagði Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur og REI. „Í báðum tilvikum er sameiginlegt markmið samningsaðila er að leysa óstöðuga raforkuframleiðslu úr jarðefnaeldsneyti af hólmi með orku frá gufuaflsvirkjunum. Það er í senn umhverfisvænna, áreiðanlegra og miklu ódýrara fyrir almenning, en margir í þessum löndum eiga ekki kost á einföldustu lífsgæðum vegna þess hve rafmagn framleitt úr olíu er dýrt," bætti Eiríkur við. Djibouti-verkefnið er með þeim hætti að þarna er þjóð sem er að framleiða alla sína raforku með jarðefnaeldsneyti en sér fram á það að fá hugsanlega alla sína raforku frá jarðhita með mjög jákvæðum umhverfisáhrifum. Eins og olíuverð hefur þróast upp á síðkastið má reikna með að þessi orka verði meira en helmingi ódýrari en jarðefnaeldsneytisrafmagnið. Þarna er verið að leysa jarðefnaeldsneytið af hólmi. sagði Eiríkur enn fremur. „Í Yemen er staðan með mjög svipuðum hætti. Þar er rafmagn framleitt með jarðefnaeldsneyti sem heimamenn vilja leysa af hólmi með endurnýjanlegri raforku og sjá ekki síst fram á það að hægt sé að framleiða hana með ódýrari hætti fyrir almenning," sagði hann að lokum.
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira