Össur sammála Þorgerði um stjórnarskrárbreytingu 21. apríl 2008 11:33 MYND/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist sammála Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að breyta eigi stjórnarskránni til þess að greiða fyrir hugsanlegum aðildarviðræðum að Evrópusambandinu. Þorgerður Katrín viðraði þessa hugmynd sína í Silfri Egils í gær og nefndi að hugsanlega ætti að gera slíkar breytingar fyrir lok kjörtímabilsins. Össur fjallar um málið á heimasíðu sinni og titlar sig elsta Evrópusinnann á Alþingi. Segist hann einnig sammála Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra um að gera þurfi vegvísi að aðildarumsókn. Össur segist ekki túlka orð Björns á þann veg að hann sé að skipta um skoðun á ESB heldur einungis þannig, að hann sé að leggja til ákveðna leið, sem hann telji færa, til að komast að niðurstöðu. „Það þarf í sjálfu sér engar vangaveltur og litla vinnu til viðbótar um kosti og galla umsóknar. Öll gögn málsins liggja meira og minna fyrir, meðal annars af hendi þeirrar ágætu Evrópunefndar sem við Björn sátum báðir í. Þess vegna tel ég að það væri heppileg aðferð að menn tækju upp hugmynd dómsmálaráðherra um vegvísi, lykju honum á 6-9 mánuðum, og vilji Íslendinga til umsóknar yrði síðan leiddur fram með hugmynd hans um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig væri það þjóðin sjálf, en hvorki alþingi né ríkisstjórn, sem tæki af skarið um hvort menn sæktu um - eða ekki. Er ekki gott fyrir alla að þetta mál yrði frá við næstu þingkosningar?" spyr Össur.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira