Innlent

Ný göngudeild BUGL tekin í notkun

Göngudeildarhús barna- og unglingageðdeildar Landspítalans að Dalbraut var formlega tekin í gagnið í dag að viðstöddum forseta Íslands og heilbrigðisráðherra. Fram kemur á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins að húsnæðið muni stórbæta aðstæður skjólstæðinga og starfsfólks BUGL. Viðbyggingin er 1244 fermetrar, tvær hæðir og jarðhæð. Byggingin er tengd núverandi húsi BUGL.

„Straumhvörf í geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni", sagði Guðlaugur Þór Þórðarson þegar hann tók húsið formlega í notkun við hátíðlega athöfn í dag. Viðstaddir auk ráðamanna voru stjórnendur Landspítala, aðstandendur geðsjúkra og velunnarar BUGL.

„Fjölmargir hafa lagt sitt af mörkum við uppbyggingu hins nýja húsnæðis og gaf Hringurinn meðal annars 50 milljónir króna til byggingarinnar á sínum tíma. Auk þess hafa margir aðrir lagt verkefninu lið með drjúgu framlagi, Thorvaldsenskonur, Kiwanismenn, Lionsmenn, kvenfélagasamtök og mörg önnur félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar," segir á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins.

Barna- og unglingageðdeild Landspítala tók til starfa árið 1970 og hét í upphafi Geðdeild Barnaspítala Hringsins í þakklætisskyni við Kvenfélagið Hringinn sem hafði lagt mikið af mörkum við stofnun deildarinnar. Starfsemin hefur aukist ár frá ári og nú eru rúmlega 100 starfsmenn við BUGL. Komur á göngudeild hafa verið allt að 7000 á ári.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×