Guðjón Friðksson sakar Matthías um lygaþvælu 29. ágúst 2008 21:45
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sakar Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins um að birta ærumeiðandi lygaþvælu á vefsíðu sinni. Þar heldur Matthías því fram að Guðjón hafi verið hrakinn úr kennslu fyrir pólitíska einkunnagjöf. Í dagbókarfærslu frá október 1998 skrifar Matthías um samtal við Jennu Jensdóttur rithöfund sem segir honum frá „útreið" sem ung stúlka, Jóhanna Eiríksdóttir, fékk hjá Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi þá „tímakennara í Ármúlaskóla". Jóhanna þessi skrifaði ritgerð um verk Matthíasar - og fékk fjóra. Ritgerð sem samkvæmt Jennu var upp á níu. Málið á að hafa farið til fyrrum fræðslumálastjóra, sem talaði við skólastjórann sem kallaði inn allar ritgerðirnar og ritgerð Jóhönnu þá reynst vera upp á níu. Upp úr þessu hafi Guðjóni verið sagt upp og hrökklast síðan til Ísafjarðar. Guðjón snýr færsluna niður í Morgunblaðinu í dag. Hann segist: -aldrei hafa kennt Jóhönnu -aldrei hafa kennt í Ármúlaskóla -aldrei svo hann muni fengið ritgerð um ljóð Matthíasar -aldrei verið sagt upp störfum við neinn skóla Matthías hefur verið gagnrýndur fyrir að rjúfa trúnað við viðmælendur sína í stöðu ritstjóra voldugasta blaðs á Íslandi til áratuga með birtingu dagbókanna og þá vekur athygli að hann birtir sögur eins og þá um Guðjón án þess að leita staðfestingar. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Arna Schram, fagnar dagbókunum en segir hann verða að eiga við sína samvisku hvort hann sé að rjúfa trúnað. Telji menn að Matthías hafi brotið starfsreglur blaðamanna geti þeir leitað til siðanefndar félagsins. Guðjón Friðriksson sagði í samtali við fréttastofu í dag að ef Matthías tæki færsluna ekki út af netinu, myndi hann leita til lögfróðra aðila og fara lengra með málið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Sjá meira