Dómsmálaráðherra segir skiptingu Suðurnesjalögreglu standa á Samfylkingunni 20. apríl 2008 18:36
Einungis stendur á þingflokki Samfylkingar að afgreiða uppskiptingu á lögregluembættinu á Suðurnesjum, segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Ríkisstjórnin sé búin að afgreiða málið fyrir sitt leiti. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð lögregluembættisins á Suðurnesjum en dómsmálaráðherra hefur sagt vilja stía í sundur lögreglu og tollgæslu. Við það eru lögreglu og tollgæslumenn á Suðurnesjum ósáttir og Jóhann R. Benediktssons lögreglustjóri hefur hótað uppsögn. Þá hefur hann sagt að eyða þurfi óvissunni um framtíð embættisins. Fréttastofa óskaði eftir svörum frá dómsmálaráðherra um málið. Í tölvupósti frá honum segir: ,,Með tillögu minni um stjórnsýslulega skiptingu embættisins var mótuð stefna til að leysa krónískan fjárhagsvanda embættisins í eitt skipti fyrir öll. Þess er beðið, að þingflokkur Samfylkingarinnar taki málið til afgreiðslu, en formaður hans taldi sig þurfa að afla gagna um málið, áður en hann afgreiddi það. Ríkisstjórn og þingflokkur sjálfstæðismanna hafa afgreitt málið af sinni hálfu. Niðurstaða ríkisstjórnar um framtíðarskipan embættisins liggur fyrir og er unnið af hálfu ráðuneytisins í samræmi við hana. " Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir að skoða verði málefni embættisins betur áður en ákvörðun verði tekin. Hún vill ekki gefa upp hver hennar skoðun á málinu sé en segist hafa rætt það meðal annars við forsætisráðherra. Aðspurð hvenær þingflokkur Samfylkingar muni taki ákvörðun sagðist hún ekki geta svarað því.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira