Enski boltinn

Milan staðfesti risatilboð Chelsea í Kaka

NordcPhotos/GettyImages

Varaforseti AC Milan segir að félagið hafi neitað risatilboði Chelsea í brasilíska miðjumanninn Kaka, en ítrekar að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

Breskir fjölmiðlar herma að tilboðið hafi hljóðað upp á allt að 80 milljónir punda eða hátt í 13 milljarða króna, en varaforseti Milan segir að Kaka verði ekki seldur og sömu sögu sé reyndar að segja af hollenska miðjumanninum Clarence Seedorf, sem orðaður hefur verið við Juventus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×