Starfsmenn Sólfells segja eigendur ætla að keyra fyrirtækið í þrot 6. júní 2008 18:47 Stjórnendur Ans fóru yfir stöðuna hjá fyrirtækinu á fundi með starfsmönnum í vikunni. MYND/eiríkur kristófersson
Starfsmenn verktakafyrirtækisins Sólfells í Borgarnesi saka móðurfyrirtæki þess um að ætla að sölsa undir sig eignir fyrirtæksins og keyra það í þrot. Öllum 35 starfsmönnum Sólfells var sagt upp störfum í síðustu viku og er mikil reiði meðal starfsmanna. Sólfell hefur frá áramótum verið rekið sem sjálfstætt dótturfélag Ans ehf. Sameining var fyrirhuguð á næstunni en í síðustu viku var öllum starfsmönnum Sólfells sagt upp fyrirvaralaust og stefnir fyrirtækið í gjaldþrot á næstunni. Fréttastofa hefur undanfarna daga talað við fjölmarga sem tengjast Sólfelli á einn eða annan hátt og það sem kemur þeim mest á óvart er tal um slæma fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Fullyrða þeir að reksturinn hafi verið í góðu jafnvægi undanfarin ár. Þeir óttast að markmið Ans sé að keyra Sólfell í þrot til þess eins að hirða eignir fyrirtækisins sem eru umtalsverðar.Heimildamenn fréttastofu fullyrða að ýmsar óvenjulegar og vafasamar bókhaldsfærslur hafi verið gerðar af forsvarsmönnum Ans eða að beiðni þeirra. Þannig bárust engar kvittanir fyrir úttektum af reikningum Sólfells á skrifstofu fyrirtækisins í Borgarnesi frá áramótum, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þess efnis. Í kjölfarið hafi innheimtukröfur í nafni fyrirtækisins hlaðist upp. Jón Pálsson, stjórnarformaður Ans, vísar þessum ásökunum á bug. Það sé af og frá að staða Sólfells hafi verið góð þegar Ans tók yfir reksturinn en staðan hafi hins vegar verið mun verri en áður var talið. Meðal annars þar sem virði útistandandi verka hafi verið ofmetið í bókhaldi félagsins. Jón segir Ans hafa tapað tugum milljóna á því að reyna að halda rekstrinum gangandi. Þar að auki eru allar eignir Sólfells veðsettar og þær er ekki hægt að taka nema með samþykki kröfuhafa.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira