Líklega farið fram á áframhaldandi varðhald í hnífstungumáli 11. ágúst 2008 12:03
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer að líkindum fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum þremenninganna sem handteknir voru fyrir helgi vegna hnífstunguárásar á Hverfisgötu föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Mennirnir voru fyrir helgi úrskurðaðir í gæsluvarðhald í þágu rannsóknarhagsmuna en öryggismyndavélar sýndu að þeir hefðu verið á ferli nærri staðnum þar sem ráðist var á erlendan mann og hann stunginn hnífi. Hlaut hann djúpt sár í baki en er nú á batavegi. Gæsluvarðhald yfir þremenningunum rennur út í dag. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Vísi að yfirheyrslum yfir þeim væri að mestu lokið en að líkindum yrði farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum mannanna. Endanleg ákvörðun yrði þó tekin síðar í dag. Við þetta má bæta að enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við líkamsárás í Lækjargötu í fyrrinótt. Þar réðust tveir menn að þeim þriðja með brotinni flösku og fékk fórnarlambið stórt sár á hálsi fyrir neðan eyra. Vitni voru að árásinni og er rannsókn hennar í fullum gangi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira