Tilgangslaus ferð til London vegna seinkunar Iceland Express Breki Logason skrifar 14. júlí 2008 11:02 Eiríkur Bergmann Einarsson
Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, röltir nú um London í tilgangsleysi. Eiríkur missti af fundi í London vegna seinkunar á flugi hjá Iceland Express. Eiríkur segist ekki æfur af bræði en það sé pirrandi að hafa misst af fundinum. Eiríkur ætlar að kanna hvort hann geti krafið flugfélagið um skaðabætur, enda hefur hann orðið fyrir fjárhagslegu tjóni. „Hann verður að senda okkur upplýsingar og útskýra þetta fjárhagslega tjón sitt eitthvað frekar, við skoðum síðan hvort það falli undir þær reglur sem gilda," segir Lára Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi Iceland Express. Eiríkur átti pantað flug til London í gærmorgun þar sem hann ætlaði að sækja fund sem hann var búinn að skipuleggja. Þaðan ætlaði Eiríkur síðan að fljúga til Berlínar. Aðfaranótt sunnudagsins fékk hann hinsvegar sms-skilaboð frá flugfélaginu þar sem tilkynnt var að morgunfluginu seinkaði en vélin færi seinni partinn. „Það bilaði hjá okkur vél og við þurftum að setja upp nýtt plan og færa til flug vegna þess," segir Lára en flugfélagið lætur viðskiptavini sína vita með tölupósti og sms-skilaboðum ef fyrirséð er að seinkun verði á flugi. Eiríkur fór hinsvegar út seinni partinn en ekkert varð af fundinum sem hann ætlaði að fara á. „Ég er því hérna í London í tilgangsleysi, það er nú samt hægt að hugsa sér verri örlög en það," segir Eiríkur sem þó hefði farið beint til Berlínar ef hann hefði vitað af seinkuninni. Aðspurður hvort hann ætli að kanna hvort flugfélagið sé skaðabótaskylt segist Eiríkur ætla að athuga það þegar hann komi heim. „Það þarf að minnsta kosti að halda annan fund einhverntíma aftur með tilheyrandi kostnaði."
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Sjá meira