Innlent

Liberty Belle væntanleg á morgun

Frægasta sprengjuflugvél seinni heimstyrjaldar, Fljúgandi virkið B-17, er væntanleg til Reykjavíkur um miðjan dag á morgun, í annað sinn á tólf dögum.

Vélin, kölluð Liberty Belle, millilenti hér í byrjun mánaðarins á leið sinni frá Bandaríkjunum til Bretlandseyja þar sem hún hefur verið í sýningarflugi. Vélin er nú heimleið vestur yfir haf og er áformað að hún verði yfir nótt í Reykjavík og haldi héðan á miðvikudag.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×