Ekkert óeðlilegt við að bílstjóri hafi réttarstöðu sakbornings 6. ágúst 2008 14:42 Magnús Þór Óskarsson og Hannes Ragnarsson.
Hannes Ragnarsson sem lenti í umferðaróhappi á skoðunarstöð Frumherja á föstudag gagnrýnir vinnubrögð lögreglunnar í Fréttablaðinu í dag. Þar segir hann m.a að lögregluþjónn hafi heimsótt sig þar sem hann lá á sjúkrahúsinu og tilkynnt sér að hann hefði réttarstöðu sakbornings í málinu. Margeir Sveinsson, fulltrúi í rannsóknardeild umferðarslysa hjá lögreglunni, segir ekkert óeðlilegt við það enda hafi Hannes valdið tjóni á öðru ökutæki. „Það er skylda okkar að kynna aðilum hvort þeir hafi réttarstöðu sakbornings eða séu vitni í málinu, það er réttur allra að fá að vita það," segir Margeir en slysið bar að með þeim hætti að bensíngjöfin á bíl Hannesar festist niðri þegar hann ætlaði að bakk örstuttan spöl. Hann kastaðist þá út úr bílnum og klemmdist á milli eigin bíls og annars sem stóð á verkstæðisgólfinu. Magnús Þór Óskarsson skoðunarmaður hjá Frumherja brást skjótt við þar sem hann sá Hannes klemmdan á milli bílanna tveggja. „Maðurinn var orðinn blár og gat engan veginn andað," sagði Magnús í samtali við Fréttablaðið í morgun. Magnús fór þá að blása lífi í Hannes sem fór að sýna lífsmark eftir sex til sjö skipti. Hannes er ósáttur með vinnubrögð lögreglunnar eins og fyrr segir og talar meðal annars um að bifreið sín hafi verið dregin í burtu óskoðuð á sinn kostnað. „Það er ótímabært að segja til um hvort kostnaður lendi þarna eða hinum megin, málið er í skoðun og það er ekki tímabært að segja til um það," segir Margeir. Margeir segir að ekkert óeðlilegt hafi verið í ferlinu þar sem Hannes er grunaður um að vera valdur að tjóni á öðru ökutæki. „Þeir aðilar sem eru grunaðir um eitthvað refsivert athæfi eiga þann rétt að fá að vita hver staða þeirra er og þurfa ekkert að tjá sig um það. Við rannsökum málið en það kemur svo í hlut ákærusviðsins að skoða hvert framhaldið verður."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira