Engin fordæmi fyrir afskiptum af skipun fulltrúa í nefndir 6. ágúst 2008 12:05
Ólíklegt þykir að borgarráð hafni brottrekstri Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur úr skipulagsráði á morgun. Engin fordæmi eru fyrir því að flokkarnir skipti sér af skipun fulltrúa í nefndir og ráð - eftir því sem best er vitað. Fundi skipulagsráðs í dag var frestað um viku og hin umdeilda tillaga um nýjan Listaháskóla verður því ekki kynnt fyrir ráðinu fyrr en eftir helgi. Þeirri ákvörðun Ólafs F. Magnússonar að víkja Ólöfu fyrirvaralaust úr skipulagsráði var ekki tekið þegjandi og hljóðalaust. Lögspekingar hafa jafnvel gert að því skóna að hún geti sótt skaðabætur til borgarinnar vegna þessa. Það er þó háð því að ekki séu málefnalegar ástæður fyrir brottrekstrinum eða að ekki sé einhugur um málið í borgarráði. Ráðið mun væntanlega taka afstöðu til brottvikningarinnar á fundi sínum á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 úr borgarkerfinu muna elstu starfsmenn þar ekki til þess að einn flokkur hafi lagst gegn því að annar flokkur skipti um fulltrúa sinn í ráði eða nefnd. Mun það einkum vera til að tryggja að meirihlutinn valti ekki yfir minnihlutann með því að hafa áhrif á hvaða minnihlutafulltrúar komast að í nefndir. Þær upplýsingar fengust hjá borginni að fundi skipulagsráðs, sem halda átti í dag, hefði verið frestað vegna flutninga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar en sviðið undirbýr gögn fyrir fundi skipulagsráðs. Þetta er í annað sinn sem fundi ráðsins er frestað. Í síðustu viku stóð til að halda fund en honum var frestað og að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í skipulagsráði, var þá einnig borið við flutningum skipulags- og byggingarsviðs.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira