Verðbólgan fer illa með leikskólakennara 6. ágúst 2008 19:00
Árslaun leikskólakennara eftir skatta hrykkju ekki til að borga verðbætur síðustu tólf mánaða á 20 milljóna króna fasteignaláni. Átján ár eru síðan verðbólga á Íslandi hefur komist í aðrar eins hæðir. Það er sennilega fátt sem dregur eins móðinn úr skuldurum eins og verðbólgan sem enn er að hækka. Því jafnvel þótt yfirvöldum takist í náinni framtíð að koma böndum á verðbólguna - eru verðbæturnar á verðtryggðu húsnæðislánunum okkar komnar til að vera, nema svo ólíklega fari að hér verði verðhjöðnun. Sú staða er vart yfirvofandi þegar verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% - og bankastjórn hans gerir sér ekki von um að ná því markmiði fyrr en eftir tvö ár. Verðbólgan blasir við okkur nánast hvar sem við drögum upp greiðslukortin. En þar sem drjúgur hluti landsmanna er í greiðsluþjónustu bankanna er óvíst að áhrif verðbólgunnar á höfuðstól fasteignalána skeri marga í augu. Tökum dæmi. Leikskólakennari á fertugsaldri tók tuttugu milljón króna verðtryggt íslenskt krónulán fyrir einu ári til að kaupa íbúð. Nú er verðbólgan komin í 13,6% og á þessum tólf mánuðum hefur höfuðstóllinn af láni kennarans hækkað um tvær milljónir sjöhundruð og tuttugu þúsund krónur. Dæmigerður leikskólakennari á þessum aldri í stöðu deildarstjóra er með rúm 270 þúsund krónur í mánaðarlaun sem gerir rösk 200 þúsund krónur eftir skatta. Ef kennarinn gerði ekkert annað við sín útborguðu laun en að borga niður höfuðstólinn - þá tæki það hann þrettán og hálfan mánuð - að greiða niður verðbólguna sem lagðist ofan á höfuðstólinn á tólf mánuðum.
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Fleiri fréttir Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Sjá meira