Þetta er til háborinnar skammar 18. apríl 2008 16:44 Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Samfylkingarinnar segir nýjasta útspilið í Orkuveitu Reykjavíkur um málefni REI vera til háborinnar skammar. Eftir tæplega fimm tíma fundarhöld í dag segir Sigrún að tillagan rýri verðgildi fyrirtækisins. Minnihlutinn lét bóka tvær athugasemdir varðandi tillöguna. „Þetta er enn eitt dæmið um að þessi meirihluti er óstarfhæfur og tekur ákvarðanir sem eru illa ígrundaðar. Þegar það kemur einhver gagnrýni þá bregðast menn við með því að kollsteypa því sem stefnt hefur verið að. Menn hafa verið að þvælast út um allan heim að skrifa undir einhverjar viljayfirlýsingar og svo kemur þetta, þetta fólk er vanhæft," segir Sigrún Elsa. Hún ásamt Svandísi Svavarsdóttur lét bóka tvær athugasemdir við tillöguna sem má sjá hér að neðan. Tillagan er sundurlaus og illa ígrunduð og lyktar af flausturslegum viðbrögðum við upphlaupi í borgarfulltrúahópi Sjálfstæðismanna. Hætt er við að hún hafi neikvæð áhrif á verðmæti REI og einstakta verkefna fyrirtækisins. Einnig er líklegt að tillagan skaði samningsstöðu REI t.d. gagnvart alþjóðlegum bönkum. Auk þess sem ekki er ljóst hvort framfylgd tillögunnar geti í einhverjum tilvikum skapað REI o.þ.m. OR bótaskyldu gagnvart þriðja aðila. Stjórnarformaður og varaformaður stjórnar eru nýkomin úr ferð sinni til Djíbútí þar sem skrifað var undir samning um tilraunboranir og viljayfirlýsingu um virkjanaframkvæmdir reynist niðurstaða tilraunaborana jákvæð. Ekki fæst betur séð en framkomin tillaga gangi þvert á þær skuldbindingar sem stofnað var til í ferðinni. Þessi hringlandaháttur er til skammar og vekur spurningar um hæfi og umboð formanns og varaformanns til að starfa að þessum málum. Fulltrúar Samfylkingar og VG telja tillöguna varla tæka á stjórnarfundi OR þar sem hún varði bæði megintilgang félagsins og hafi veigamikil áhrif á starfsemi þess og falli því frekar að verksviði eigendafundar. Seinni athugasemdin Fulltrúar Samfylkingar og VG óska bókað að gefinn var kostur á því að taka málið út af dagskrá á fundinum þar sem það er bæði vanreifað og illa unnið og tillagan samræmist ekki niðurstöðu stýrihóps borgarráðs. Á síðasta eigendafundi OR, sem haldinn var 15. febrúar sl., var samþykkt: Eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur samþykkir að Reykjavik Energy Invest verði að 100% í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og verði áfram rekið með það hlutverk að sinna þróunar- og fjárfestingarverkefnum á erlendri grund. Því er ljóst að tillaga meirihluta stjórnar OR eðlisbreyting frá samþykktum síðasta eigendafundar. Stjórn OR getur ekki tekið fram fyrir hendurnar á eigendum hvað svo sem öllum ágreiningi í borgarfulltrúahópi Sjálfstæðismanna líður.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira