Innlent

Sektað fyrir brot á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir

Samkeppniseftirlitið hefur sektað Fiskmarkað Íslands um um tíu milljónir króna fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman kaup og slægingu á fiski og þannig raskað samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir.

Það var fyrirtækið Frosfiskur sem kvartaði undan því að kaupendur á fiski væru neyddir til þess að kaupa slægingu sem þeir höfðu ekki óskað eftir á óslægðum fiski sem þeir höfðu keypt á markaðnum. Með því var eðlilegri samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir raskað mati Samkeppniseftirlitsins.

Þá hafði háttsemi Fiskmarkaðarins einnig samkeppnishamlandi áhrif á markaði fyrir slægingu þar sem sá fiskur sem fiskkaupendur höfðu keypt sem óslægðan var slægður í slægingarþjónustu markaðarins. Áttu því keppinautar Fiskmarkaðar Íslands á slægingarmarkaði ekki kost á því að gera tilboð í slægingu á þeim fiski. Þá gátu kaupendur að fiski sem einnig reka slægingarþjónustu ekki slægt sjálfir fiskinn sem þeir keyptu.

Máttu ekki setja Frostfisk á válista

Samkeppniseftirlitið komst einnig að því að Reiknistofa fiskmarkaða hf. hefði farið gegn 11. grein samkeppnislaga með því að setja Frosfisk á válista vegna ógreiddrar slægingarskuldar. Félag sem lenti á válista var útilokað frá viðskiptum á Fiskaneti RSF þar til skuldin hafði verið greidd.

,,Því er það mat eftirlitsins að um ólögmæta aðgerð af hálfu RSF hafi verið að ræða sem raskað gat samkeppni á viðkomandi markaði. Hins vegar verður að athuga að lagaumhverfi starfsemi RSF er nokkuð óskýrt og því er það mat eftirlitsins að ekki sé tilefni til þess að sekta RSF vegna brota félagsins," segir einnig á vef Samkeppniseftirlitsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×