Enski boltinn

Chelsea með risatilboð í Robinho?

NordcPhotos/GettyImages

Umboðsmaður Brasilíumannsins Robinho hjá Real Madrid segir að Chelsea hafi gert Real hátt í 32 milljón punda kauptilboð í leikmanninn.

Forráðamenn Real Madrid fullyrða að leikmaðurinn verði ekki seldur frá félaginu en í vikunni spurðist út að Barcelona hefði sett sig í samband með kaup í huga.

"Það hefur ekkert tilboð komið frá Barcelona en Chelsea hefur boðið Real 40 milljónir evra. Forseti Real vill hinsvegar ekki selja hann," sagði umboðsmaðurinn í útvarpsviðtali á Spáni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×