Innlent

Ásta Möller í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins

Ásta Möller og Tabo Mbeki, forseti Suður-Afríku.
Ásta Möller og Tabo Mbeki, forseti Suður-Afríku.

Ásta Möller alþingiskona hefur verið kosin í framkvæmdastjórn Alþjóðaþingmannasambandsins. Þetta er í annað sinn sem íslenskum þingmanni hlotnast þessi heiður en Geir Haarde sat í stjórninni á tíunda áratug síðustu aldar. Sambandið fundaði í vikunni í Suður-Afríku.

Þingið var það 118. í röðinni og fór það fram í Höfðaborg. Fundinn sóttu alþingismennirnir Ásta Möller, formaður Íslandsdeildar, Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður og Þuríður Backman. Yfir 700 þingmenn frá 130 ríkjum sóttu þingið og hefur þátttakan aldrei verið meiri.

Í dag var haldinn þingfundur þar sem Ásta bar sigurorð af þýsku þingkonunni Moniku Griefahn í kosningu til framkvæmdarstjórnarinnar með 37 atkvæðum gegn 26. Ásta verður ein fjögurra fulltrúa í landahóp vestrænna lýðræðisríkja.

Framkvæmdastjórn IPU hefur umsjón með rekstri samtakanna og er hún skipuð 17 fulltrúum sem kosnir eru til fjögurra ára.

IPU var stofnað árið 1889 og hefur síðan verið stærsti vettvangur alþjóðasamstarfs þjóðþinga. Flest þjóðþing heims eiga aðild að sambandinu, 147 ríki auk sjö aukaaðildarríkja. Alþingi hefur átt aðild að sambandinu frá árinu 1951. Markmið sambandsins er að vinna að friði og samstarfi meðal þjóðþinga og treysta lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing í sessi.

Helstu mál sem rædd voru á þinginu í Höfðaborg voru þróunaraðstoð, atvinnumál innflytjenda, mansal, mannréttindi, konur og fjölmiðlar og heilsa ungbarna og mæðra. Enn fremur fór fram umræða um baráttuna gegn fátækt í heiminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×