Innlent

Hollvinir hallargarðsins stofna samtök

Stofnfundur Hollvinasamtaka Hallargarðsins verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11, sunnudaginn 20. apríl kl. 13.00. Flutt verða stutt ávörp og boðið verður upp á leiðsögn um húsið og garðinn.

Málefni garðsins hafa verið mikið í umræðunni síðustu daga en borgarfulltrúar Vinstri grænna eru ósáttir við söluna á Fríkirkjuvegi 11 til Björgólfs Thors Björgólfssonar. Þeit óttast meðal annars að aðgengi almennings að garðinum verði takmarkað.

„Undirbúningshópur um stofnun samtakanna hvetur fólk til að mæta og standa með Hallargarðinum, sem er sameign okkar allra," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×