Innlent

Verðandi iðnaðarmenn keppa í Laugardalshöllinni

Íslandsmót iðngreina hófst í morgun í gömlu Laugardalshöllinni. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra setti mótið kl. 11 og stendur það til kl. 18 í dag, föstudag, og kl. 9-18 á morgun, laugardag. Sýnt verður beint frá keppninni á Netinu.

Í tilkynningu kemur fram að keppt verði í 11 greinum á mótinu og alls eru hátt í 80 keppendur skráðir til leiks. „Markmið Íslandsmóts iðngreina, sem Iðnmennt stendur fyrir, er að vekja athygli á iðn- og starfsmenntun, kynna almenningi iðngreinar - ekki síst ungu fólki - og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Alls verða á mótinu fulltrúar um 20 iðn- og starfsgreina."

Fyrirkomulagi mótsins hefur verið breytt í ár frá því sem verið hefur að því leyti að nú ber það yfirskriftina Íslandsmót iðngreina í stað Íslandsmóts iðnnema. „Íslandsmót iðngreina er undanfari og forkeppni einstakra keppnisgreina fyrir þátttöku í Euro Skills og World Skills sem er alþjóðleg keppni iðngreina. Meira er lagt í keppnisgreinarnar nú en áður og viðfangsefnin í flestum tilvikum veigameiri og meira krefjandi. Markmiðið með breyttu fyrirkomulagi er m.a. að auka þátttöku atvinnulífsins í mótinu og efla tengslin milli þess og iðnskólanna."

„Íslandsmótið er ætlað iðnnemum og nýútskrifuðum iðnaðarmönnum, 22 ára og yngri. Keppt er í eftirtöldum greinum: Málmsuðu, trésmíði, pípulögn, bílaiðngreinum, múrverki, málaraiðn, dúklagningum, hársnyrtingu, snyrtifræði, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum og rafvirkjun. Auk þess eru nokkrar aðrar greinar kynntar á mótinu; fatahönnun, matvælaiðngreinar, skrúðgarðyrkja, gluggaútstillingar og rafeindavirkjun."

Varpað verður beint frá mótinu á vefnum í boði nema í rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×