Gagnrýnir umfjöllun um efnahagslíf 18. apríl 2008 17:53
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að sér finnist að á stundum sé fjallað um ástand efnahagsmála af léttúð og skilningsleysi. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins, sem fram fór í dag. „Þar á ég meðal annars við framgöngu ákveðinna stjórnmálamanna og fjölmiðla og staðhæfingar um að ekkert sé verið að gera, eins og það heitir. Stundum er talað eins og stjórnvöld ráði yfir töfralausnum sem ekki séu til annars staðar þegar vandinn er aftur á móti sá að alþjóðlegir vindar skekja okkar eigið hagkerfi án þess að við höfum mikið um það að segja. Sannleikurinn er sá að á vegum ríkisstjórnarinnar, en þó sérstaklega Seðlabankans, hefur að undanförnu verið unnið baki brotnu að því að greiða úr þeim vanda sem hinar alþjóðlegu aðstæður hafa skapað. Slíkar aðgerðir eru þess eðlis að undirbúningur þeirra tekur langan tíma og ekki er hægt að flytja af þeim fréttir frá degi til dags," sagði Geir. Geir sagði að mikil opinber umræða gæti verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif. Stuttar boðleiðir og skjót ákvarðanataka séu óumdeilanlega meðal helstu styrkleika íslensks viðskiptalífs og stjórnsýslu. Þetta geti á hinn bóginn líka verið veikleiki þegar gerð sé krafa um sama hraða í mun stærri kerfum og óþolinmæði ríkti gagnvart lengri boðleiðum og seinvirkari ákvarðanaferlum. „Neikvætt umtal víða erlendis um íslenskt efnahagslíf og íslenskt bankakerfi, samdráttur í útlánum banka og sparisjóða, mikil lækkun á gengi íslensku krónunnar og verðhækkun á margvíslegri vöru og þjónustu hefur valdið óróa hér innanlands. Það er skiljanlegt. Hér á landi hefur vaxið úr grasi heil kynslóð athafnamanna sem aldrei hefur þurft að horfast í augu við erfiðleika af þessu tagi. Ég trúi því hins vegar að hér sé um tímabundið ástand að ræða því að fjölmargir þættir í íslenskum þjóðarbúskap eru afar jákvæðir hvort sem litið er til skemmri eða lengri tíma," sagði Geir.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira