Futura á hausnum - Úrval-Útsýn leitar að nýju flugfélagi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. september 2008 13:11
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn leitar nú að nýjum aðila til að annast farþegaflug eftir að spænska flugfélagið Futura Airways var sett í tveggja daga flugbann af spænskum yfirvöldum þar til fullnægjandi greinargerð um rekstrargrundvöll félagsins liggur fyrir af hálfu stjórnenda þess. „Þeir voru stoppaðir í tvo daga, mánudag og þriðjudag [í dag og á morgun] en reyndar er búið að afnema það stopp núna. En þegar þetta fer af stað fer maður strax að leita að öðrum lausnum," sagði Helgi Jóhannsson, stjórnarformaður Ferðaskrifstofu Íslands. Hann sagði að búið væri að bjarga öllum ferðum í dag og nánast út vikuna. Tímasetningin væri heppileg þar sem komið væri fram í september og mikið af flugvélum að losna. „Við ætlum bara að leysa vikuna með því að leita til annarra flugfélaga, jafnvel þótt okkur sé sagt að Futura geti flogið. Við viljum bara hafa vaðið fyrir neðan okkur," sagði Helgi enn fremur og sagði að meðal annars hefði Iceland Express hlaupið undir bagga með ferðaskrifstofunni. „Nú erum við bara að safna saman upplýsingum frá þeim flugfélögum sem eiga vélar og reyna að finna þann valkost sem truflar minnst," sagði Helgi. „Ef þeir [Futura] leysa sín mál er það bara fínt en við viljum bara hafa þetta hundrað prósent öruggt," sagði hann að lokum. Samkvæmt frétt dönsku fréttasíðunnar standby.dk missa 1.500 manns vinnuna ef Futura Airways leggur upp laupana.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira