Innlent

Hanna Birna borgarstjóri heimsótti utanríkisráðherra

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri setti þrettándu Menningarnótt Reykjavíkur klukkan eitt á Óðinstorgi í dag. Fjölmenni var þar saman komið og lét fólk rigninguna ekkert á sig fá og klæddi sig eftir veðri.

Að loknu ávarpi borgarstjóra flutti Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og borgarlistamaður Menningarnæturljóð. Á Óðinstorgi var Nörrebro stemning og boðið upp á smörrebröd og lesið upp úr ævintýrum H.C.Andersens.

Borgarstjóri heimsótti Utanríkisráðuneytið þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tók á móti henni og kynnti starfsemi ráðuneytisins.

Liðlega fjögur hundruð viðburðir eru í boði frá hádegi til miðnættis á Menningarnótt og teygir dagskráin sig frá Miklatúni að Háskólatorgi, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×