„Fólkið á Íslandi hefur virkilega snert hjarta mitt" Nanna Hlín skrifar 10. júlí 2008 13:54 Paul Ramses „
Ég er svo þakklátur fyrir allan þann stuðning sem fólkið á Íslandi hefur sýnt mér" segir Paul Ramses sem dvelur nú á gistiheimili fyrir hælisleitendur í Róm. „Það sýnir okkur að Íslendingar eru friðelskandi þjóð og umhugað um mannréttindi sem er gott að vita og gott fyrir fólkið." „Þegar maður kemur til lands sem hælisleitandi veit maður ekki hvernig fólk á eftir að koma fram við mann. Ég þarfnaðist ástar og umhyggju og fólkið á Íslandi hefur virkilega snert hjarta mitt," segir Ramses. Ramses sótti um hæli hér á landi í lok janúar. Á miðvikudagskvöldið í síðustu viku fékk hann þær fregnir frá lögreglunni að ákvörðun hefði verið tekin um að synja því að fjalla um hælisbeiðni hans hér á landi og senda hann til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarsamningsins. Snemma morguns daginn var hann sendur af landi brott. Lögfræðingur hans, Katrín Theódórsdóttir, hefur kært ákvörðunina til dómsmálaráðuneytisins og krafist þess að hún verði dæmd ógild. „Þegar þetta gerðist varð ég svo áttavilltur, þar sem ég vissi líka hvernig aðstæður væru í Kenía, að ég væri ekki öruggur þar. Við fjölskyldan erum svo þakklát að ég muni að minnsta kosti kannski fá annað tækifæri til þess að lifa og vera til staðar fyrir fjölskyldu mína." Paul Ramses sagðist í samtali við Vísi vera frekar þreyttur eftir allt sem hefði gengið á og saknar fjölskyldu sinnar. Hann hefði tvisvar farið á skrifstofuna þar sem sótt er um hæli á Ítalíu en þar hefðu verið miklar raðir af fólki. Ramses hafði ekki heyrt neitt frá fulltrúum Íslands á Ítalíu. Einhver frá sendiráði Íslands hefði reynt að hringja á gistiheimilið á laugardaginn en hann hefði ekki verið við. Hann hafði hins vegar fengið símanúmer til að hringja í en enginn svarað því númeri. Ramses var mjög ánægður að heyra að utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir væri umhugað um málið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira