Innlent

Fyllti kerru af útrunnum matvælum í Nóatúni

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kerran, stútfull af útrunnum matvælum.
Kerran, stútfull af útrunnum matvælum. MYND/Neytandi

Viðskiptavinur Nóatúnsverslunarinnar í Smáralind hafði samband við Vísi og sagðist hafa fyllt innkaupakerru í versluninni af gosi, safa og þurrvörum sem allt reyndist útrunnið. Það sem rann út fyrir lengstu hafði 1. febrúar á þessu ári sem síðasta neysludag.

„Ég er búinn að láta verslunarstjórann hafa þetta og hann ætlar að farga þessu. Þessar vörur voru úr einni hilluröð í búðinni og svona er þetta meira og minna í flestöllum hilluröðunum eða var það alla vega í dag," sagði maðurinn óhress.

Ólafur Ragnarsson, verslunarstjóri Nóatúns í Smáralind, staðfesti að þetta hefði gerst. „Þetta er frekar óheppilegt en þarna var fyrst og fremst um að ræða safa og gos frá ölfyrirtækjunum og þau sjá alfarið um að panta í þetta, þrífa hillur og fylla á," sagði Ólafur. Þó væri þarna um að ræða kex og fleira sem runnið væri út og viðurkenndi hann fúslega að þar væri um að ræða mannleg mistök af hálfu Nóatúns. „Það er alltaf hvimleitt þegar svona kemur fyrir og þetta voru mistök."

Versluninni í Smáralind verður lokað á mánudag en verið er að fækka Nóatúnsverslunum. „Þetta eru Hverafold, Furugrund og þessi búð, sem verður lokað. Við munum leggja kapp á búðirnar sem eftir eru og styrkja þær þjónustulega og útlitslega," sagði Ólafur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×