Heilbrigðisráðherra semur við Læknafélagið 8. júlí 2008 13:22 Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Samninganefnd heilbrigðisráðherra (SHBR) og samninganefnd Læknafélags Íslands hafa gert samning um þjónustu heimilislækna á læknastofum utan heilsugæslustöðva. Þetta er rammasamningur til fimm ára. Á grundvelli hans er stefnt að útboði á rekstri læknastofu þriggja til fimm heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu síðar á árinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. Þar segir enn fremur: „Samningurinn á sér langan aðdraganda, en meginmarkmið hans er að efla heilsugæslu og heimilislækningar sem undirstöðu heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Með samningnum er ætlunin að bæta aðgengi sjúklinga að grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins, en einnig að gera stjórnvöldum og veitendum þjónustunnar kleift að bregðast skjótar en áður við breyttum aðstæðum og nýjum áherslum. Þannig er samningnum ætlað að bæta þá þjónustu sem í boði er á hverjum tíma, auka svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma og auðvelda útfærslu heilbrigðisþjónustunnar eins og henta þykir hverju sinni. Með því að efla grunnþjónustuna er jafnframt leitast við að styrkja stöðu þeirra sem sérhæfa sig í heimilislækningum. Samningurinn miðast við að þrír eða fleiri heimilislæknar myndi teymi um faglegt samstarf og rekstur heilsugæslu- og læknastöðvar. Þjónustan sem samningurinn tekur til skal að jafnaði unnin á læknastofu heimilislæknis sem hlotið hefur sérfræðiviðurkenningu heilbrigðisstjórnar í heimilislækningum. Ákvæði í samningnum er þó ætlað að auðvelda læknum að sinna vitjunum, þ.e. sjúklingum sem ekki eiga heimangengt. Sambærilegar kröfur munu gerðar til læknastöðva og lækna sem vinna eftir þessum samningi og gerðar eru í hinu opinbera heilsugæslukerfi. Miðað er við að sjúklingar velji lækni og að hann geti stöðvað skráningu sjúklinga á sig þegar þeir verða 1.500. Réttur sjúklings til að skipta um lækni er að öðru leyti tryggður. Þeir eiga að geta leitað til síns læknis með komu á stöð, í gegnum síma eða með tölvupósti og fengið viðunandi úrlausn samdægurs. Í sérstökum rekstrarsamningi er gert ráð fyrir að fyrirhuguð staðsetning stöðvarinnar og starfstími verði tiltekinn, svo og kveðið á um áherslu- og sérverkefni. Þannig er opnað fyrir ákveðna sérhæfingu samhliða hinni almennu þjónustu. Á grundvelli þjónustukannana skal stöð umbunað fyrir mjög góða þjónustu. Gert er ráð fyrir að frumkvæði að áhersluverkefnum geti ýmist komið frá stjórnvöldum eða rekstrararaðilunum. Dæmi um möguleg áherslu- og sérverkefni er skólaþjónusta, tiltekið rannsóknarstarf, öldrunarþjónusta, þjónusta við hjartasjúklinga, þjónusta við börn með geðraskanir og þjónusta vegna áfengis- og vímuefnavandamála. Með sérvekefnum tengdum þessum störfum gefst kostur á ákveðinni verkaskiptingu milli stöðva, sem aftur kallar á samstarf og samvinnu óháð því hvort um er að ræða opinberar heilsugæslustöðvar eða stöðvar sem starfa skv. sérstökum þjónustusamningum. Ef vel tekst til með fyrirhugað útboð á grundvelli rammasamningsins eru vonir við það bundnar að hann geti orðið grundvöllur að endurnýjuðum samningum við þá sjálfstætt starfandi heimilislækna sem í dag starfa skv. sérstökum samningum. Rammasamningurinn sjálfur leiðir ekki til útgjaldaaukningar. Á vegum samninganefndar heilbrigðisráðherra er unnið að gerð sambærilegs rammasamnings við sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga. Undirbúningsverkefni í samstarfi við lungnadeild LSH er að ljúka og er stefnt að rammasamningi um þjónustuna fyrir áramót. Heimaþjónustu við langveika lungnasjúklinga er ætlað að bæta líðan og getu þeirra til að lifa með sjúkdóminn. Henni er jafnframt ætlað að fækka sjúkrahússinnlögnum og stytta legutíma. Kjarni þjónustunnar er sérhæfð hjúkrun sem fyrirhugað er að teymi hjúkrunarfræðinga tryggi með rekstri sjálfstæðrar hjúkrunarstofu."
Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira