Innlent

Hundrað og áttatíu milljónir til menntaverkefna á landsbyggðinni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Menntamálaráðherra hyggst veita allt að 180 milljónir króna til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni.

Við undirbúning styrkveitinga voru símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar á landsbyggðinni skilgreind sem samstarfsaðilar verkefna sem undirbúin voru í samráði við hagsmunaðila á viðkomandi svæði , en það eru stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög. Áhersla var lögð á að styrkja menntunarverkefni sem væru til þess fallin að mæta afleiðingum samdráttar í fiskveiðum og fiskvinnslu.

Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að ráðuneytið hafði samráð við iðnaðarráðuneyti sem gekkst fyrir greiningu Byggðastofnunar á afleiðingum aflasamdráttar eftir sveitarfélögum um land allt. Jafnframt hafi verið ákveðið að leggja sérstaka áherslu á þróunarverkefni til lengri tíma í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×